Laxveiðimenn eru nú víða á útkíkki eftir þeim silfraða. Lax hefur sést í þó nokkrum ám enda tímabilið að bresta á. Laxar hafa sést í Laxá í Leirársveit, Laxá í Kjós, tveir sáust í Miðfjarðará á hefðbundnum vorstað í dag, í Kistunum í Vesturá. Norðurá er svo sannarlega búin að taka á móti þeim fyrstu og ríflega það. Laxar hafa sést á Brotinu, Berghylsbrotinu, Stokkhylsbroti og víðar. Í gær sáu vanir menn þrettán laxa á Brotinu en þeim hafði fækkað verulega þegar sami staður var skyggður í dag. Sömu sögu má segja af Berghylsbrotinu en laxar sem sáust þar í gær voru horfnir í morgun.
Sumarblíða var í Norðurárdalnum í dag og lofthiti fór í sautján gráður. Við þau skilyrði stígur vatnshiti að sama skapi og með vatnshita í kringum átta gráður þá skapast kjörskilyrði fyrir laxinn til að ganga. Norðurá er í rúmum tólf rúmmetrum og við þær aðstæður er gaman að veiða hana. Vissulega detta út veiðistaðir en aðrir koma sterkir inn.
Brynjar Þór Hreggviðsson sem er einn af rekstraraðilum Norðurár skaust upp í Borgarfjörð til að skoða aðstæður. „Já. Það eru margir að missa sig á síðustu metrunum. Við opnum á fimmtudag og við höfum séð drjúgt af laxi. Laxarnir sem ég sá í dag voru þykkir og virtust flottir. Betur haldnir en í fyrra. Þannig að maður er orðinn virkilega spenntur,“ sagði Brynjar Þór í samtali við Sporðaköst í kvöld.
Laxveiðitímabilið hefst formlega í fyrramálið þegar landeigendur og leigutakar byrja í Urriðafossi. Sporðaköst verða þar og munu flytja fréttir af gangi mála.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 100 cm | Hrútafjarðará | Jón Tómas Rúnarsson | 23. september 23.9. |
| 102 cm | Ytri Rangá | Skjöldur Pálmason | 21. september 21.9. |
| 100 cm | Miðá í Dölum | Eyrún Ýr Guðmundsdóttir | 21. september 21.9. |
| 100 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 18. september 18.9. |
| 101 cm | Miðsvæðið Laxá í Aðaldal | Helgi Jóhannesson | 17. september 17.9. |
| 105 cm | Hofsá | Sveinn Blöndal | 15. september 15.9. |
| 106 cm | Laxá í Aðaldal | Sigvaldi A. Lárusson | 14. september 14.9. |
