Um tíðina réði Gosselin-fjölskyldan ríkjum á sjónvarpsstöðinni TLC. Fjölskyldan samanstóð af foreldrunum Kate og Jon, tvíburastúlkunum Madelyn og Cara, og sexburunum Aaden, Alexis, Collin, Hönnuh, Joel og Leah.Fjölskyldan kom fram í vinsælu raunveruleikaþáttunum „Jon and Kate Plus 8“. Þættirnir hófu göngu sína árið 2007 og komu út ellefu þáttaraðir yfir tíu ára skeið á sjónvarpsstöðinni TLC. Árið 2009, eftir tvær þáttaraðir, skildu Jon og Kate, en þættirnir héldu áfram undir nafninu: „Kate plus 8.“
Manst þú eftir frægu sexburunum? - Opnar sig um erfiða æsku og ofbeldi