Eldur sem varð minnst 27 að bana á bar í Bangkok, höfuðborg Taílands, í nótt breiddist hratt út.
Vitni lýsa mikilli skelfingu gesta á barnum og veitingastaðnum Rong Beer Na Lat Phrao. Fólk hljóp æpandi út og föt sumra stóðu í ljósum logum. Liðsmaður í hljómsveitinni sem var að spila þegar eldurinn kviknaði sagði að ljósin hefðu slokknað og reykur komið frá rafmagnstöflu nærri sveitinni. Þegar hann skreið að útganginum heyrðist sprenging og hann fann hitavegg skella á hnakkanum á sér. Tveir úr hljómsveitinni fórust í brunanum.
Myndskeiðið hér fyrir neðan, sem sjónarvottur tók, sýnir vel hversu mikill kraftur var í eldinum.
Myndir innan úr brunnum barnum sýna að þar er allt í rúst, bæði innanstokksmunir og hljóðfæri.
Flest þeirra sem létust voru inni á salernum og virðast hafa leitað skjóls þar undan eldinum. Sjötíu og þrír slösuðust og var 41 lagður inn á spítala, þar af eru 25 í gjörgæslu. Flestir þeirra sem létust dóu úr reykeitrun.
Eldsupptök hugsanlega í rafmagni
Eldsupptök hafa ekki verið staðfest. Kitrat Panphet ríkislögreglustjóri segir að enn hafi ekki verið hægt að ræða við eiganda barsins sem liggur á gjörgæsludeild. Meðal þess sem er til skoðunar er rafmagnskerfið og hvort skreytingar á staðnum gætu hafa aukið útbreiðslu eldsins. Ein tilgátan er skammhlaup í loftkælingu. Þá er einnig verið að rannsaka hvort útgangar hafi verið aðgengilegir. Einn þeirra var að hluta á bak við hillusamstæðu þannig að aðeins einn gat farið þar út í einu.
Þetta er mannskæðasti eldsvoði í Taílandi síðan á nýársnótt 2009 þegar 67 létust og 200 slösuðust í nýársfagnaði á næturklúbbi í Bangkok.