Að minnsta kosti 21 særðist í árásum næturinnar en sex þeirra sem dóu voru starfsmenn opinbers lestarfyrirtækis Úkraínu.
Úkraínumenn hefur um nokkurt skeið skort flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, sem eru einu loftvarnarkerfin sem Úkraínumenn eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður skotflaugar.
Sjá einnig: Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa notað mikinn fjölda þotuknúinna sjálfsprengidróna, sem erfiðara er að skjóta niður en eldri týpur, og margar skotflaugar til árása næturinnar.
Hann segir íbúðarhús hafa orðið fyrir skemmdum og að þúsundir fjölskyldna séu án rafmagns.
Forsetinn segir einnig að árásum Rússa sé sérstaklega ætlað að valda óbreyttum borgurum eins miklum skaða og hægt sé. Það takist Rússum þegar loftvarnir Úkraínumanna dugi ekki til.
Hann segist þakklátur öllum þeim sem hjálpi Úkraínu við það að öðlast flugskeyti í loftvarnarkerfi og hjálpi með öðrum hætti. Gífurlega mikilvægt sé að Úkraínumönnum berist fleiri flugskeyti í haust. Líf séu í húfi.
In many cities and communities, work to address the aftermath of the Russian attack has been ongoing since last night – nearly 350 first responders are involved in Kyiv and the region alone. A significant number of jet-powered drones and ballistic missiles were used in the… pic.twitter.com/8cg4ik0V2F
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 1, 2026
Þrátt fyrir flugskeytaskortinn tókst Úkraínumönnum að skjóta niður fimm skotflaugar, samkvæmt herforingjaráði ríkisins. Þá tókst þeim einnig að granda 187 sjálfsprengidrónum og sjö stýriflaugum.
Varnarmálaráðuneyti Rússlands heldur því fram að 516 úkraínskir sjálfsprengidrónar hafi verið skotnir niður yfir átján héruðum landsins og Krímskaga.
Eldur kviknaði í olíuvinnslu í Ust-Luga og þá líklega eftir drónaárás Úkraínumanna.
An impact was recorded at Novatek's gas condensate processing and terminal complex in Ust-Luga, Russia. The facility is still burning following the strike. #Russia https://t.co/0LnnYKKUu3 pic.twitter.com/R9G32lA6Ty
— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) September 1, 2026