Rúv greindi fyrst frá. Tveir eru enn í gæsluvarðhaldi en samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheiminum að ræða. Tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu þar sem eggvopni og kylfum var beitt auk þess sem ekið var á einn brotaþola.
Alls hafa ellefu manns verið handteknir í tengslum við málið. Aðfaranóttina þriðjudagsins 17. mars mun 26 ára íslenskur karlmaður hafa mætt í bílakjallara Höfðatorgs ásamt karlmönnum frá Alsír og Marokkó. Þeir munu hafa átt þar fund með Palestínumanni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sagði í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar að ekkert benti til þess að mennhefðu tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins.