Borgarstjórinn í New York, Zohran Mamdani, byggði kosningabaráttu sína á því loforði að gera borgina aðgengilegri fyrir almenning, markmið sem hann hefur þegar tekið skref í áttina að. Frá því að opna fyrstu gjaldfrjálsu barnagæslu borgarinnar fyrir starfsfólk hennar til þess að móta raunhæfar áætlanir um matvöruverslanir í opinberri eigu virðist hann hafa nýtt fyrstu mánuði sína í embætti vel. Nú vill hann einnig tryggja að afþreying verði aðgengileg öllum.
Nýverið kynntu skrifstofa borgarstjóra, gestgjafanefnd FIFA-heimsmeistaramótsins 2026 í New York og New Jersey, auk NYC Tourism + Conventions, sérstaka áætlun undir heitinu: Sértilboð fyrir sigurvegara borgarhlutanna fimm (e. Five Borough Winners Special). Samkvæmt henni munu veitingastaðir, barir og önnur matvælafyrirtæki víðs vegar um borgina bjóða mat og drykk á um 3.200 krónur eða 26 dollara meðan á heimsmeistaramótinu stendur í sumar, frá 11. júní til 19. júlí.
„Slíkur fjöldi getur auðveldlega leitt til verðhækkana“
MetLife-leikvangurinn í Rutherford í New Jersey, sem tímabundið verður nefndur New York New Jersey Stadium, mun hýsa átta leiki á mótinu í sumar, þar á meðal sjálfan úrslitaleikinn. Gestgjafanefndin gerir ráð fyrir að mótið laði að sér meira en 1,2 milljónir gesta á New York–New Jersey-svæðið. Slíkur fjöldi getur auðveldlega leitt til verðhækkana hjá fyrirtækjum á borð við hótel og veitingastaði. Með átakinu er markmið Mamdanis að tryggja bæði heimamönnum og gestum stöðugt framboð matar og drykkjar á viðráðanlegu verði.
Í fréttatilkynningu frá skrifstofu sinni segir Mamdani að í New York þurfi fólk ekki á dýrum miða að halda til að vera hluti af heimsmeistaramótinu. Smærri fyrirtæki borgarinnar bjóði upp á einhver bestu sætin. Þá segir hann átakið muni hjálpa vinnandi New York-búum og gestum að finna stað þar sem hægt sé að borða og drekka á traustu verði, um leið og það styrki viðskipti í hverfum víðs vegar um borgina. Hvort sem fólk fylgist með leik á veitingastað í Jackson Heights, á bar í Bronx eða á kaffihúsi í miðborg Brooklyn, eigi heimsmeistaramótið að vera eitthvað sem allir New York-búar geti tekið þátt í.
Tilboðin verða með ýmsu móti
Meira en 600 fyrirtæki hafa þegar skráð sig til leiks og skrifstofa borgarstjóra væntir þess að þeim fjölgi enn frekar. Meðal þeirra staða sem taka þátt eru White Horse Tavern á Manhattan, veitingastaðurinn Gold Spoon í Bronx, Pasta Louise í Brooklyn, La Baraka í Queens og Kills Boro Brewery á Staten Island.
Tilboðin verða með ýmsu móti og ráðast alfarið af ákvörðunum eigenda fyrirtækjanna. Til greina koma meðal annars matseðlar með föstum verðum, samsetning á mat og drykk, afslættir af drykkjum og önnur sambærileg tilboð, svo fremi sem verðið sé 26 dollarar. Þótt heimsmeistaramótið hefjist 11. júní geta fyrirtæki skráð sig í áætlunina allt til 1. júlí.
Vill tryggja að sem flestir geti notið stemningarinnar
Til að laða að enn fleiri viðskiptavini í sumar geta veitingastaðir og barir sem taka þátt einnig boðið upp á minjagripaglös í takmörkuðu upplagi. Um er að ræða 24 únsa, eða um 700 millilítra, endurnýtanleg glös í fimm útfærslum, einni fyrir hvern borgarhluta. Þannig geta viðskiptavinir ferðast um borgina og safnað þeim öllum. Fyrirtæki sem skrá sig í átakið fyrir 11. júní fá tvo kassa af glösunum án endurgjalds.
Hvort sem fólk hefur mikinn áhuga á fótbolta eða ekki virðist Mamdani ætla að tryggja að sem flestir geti notið stemningarinnar í borginni án þess að greiða yfirverð fyrir það.
