Máli Pétur Péturssonar, sem lét af störfum sem slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu nýverið, hefur verið vísað til rannsóknar lögreglu.
Þetta kemur fram í tilkynningu stjórnar Brunavarna Árnessýslu.
Við yfirferð stjórnar á tilteknum þáttum í starfseminni komu fram upplýsingar sem réttast taldi að vísa til rannsóknar lögreglu en málið varðar fjárreiður Brunavarna Árnessýslu.
Starfsemin óbreytt og uppbygging heldur áfram
Segir í tilkynningunni að stjórnin líti málið alvarlegum augum en ætli þó ekki að tjá sig frekar um efni þess að svo stöddu. Starfsemi Brunavarna Árnessýslu er óbreytt og öll lögbundin þjónusta og viðbragðsgeta er óskert.
Starfsmönnum slökkviliðsins var sent bréf í dag þar sem þeim var tilkynnt um málið.
Í bréfinu er tekið fram að málið muni ekki áhrif á þær framkvæmdir og uppbyggingu sem þegar er hafin innan Brunavarna Árnessýslu.