Vegagerðin vekur athygli á því að á morgun, föstudag, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í austurátt fram hjá Vatnsleysustrandarvegi.
Vegurinn verður því þrengdur í eina akgrein fram hjá vinnusvæðinu og lokað verður inn á Reykjanesbraut frá Vatnsleysustrandarvegi.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá klukkan átta í fyrramálið til klukkan átta annað kvöld.
Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, segir annars að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eigi sér nú stað víða um land þessa dagana. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.