Börnum og ungmennum sem hafa alist upp í mafíufjölskyldum á Ítalíu verður gefinn kostur á að brjótast undan mafíunni samkvæmt nýjum ítölskum lögum. Lögin eru sögð eiga að brjóta upp hefðir í mafíumenningu. Starfsemin erfist jafnan milli kynslóða og sonur mafíuforingja erfir oft stöðu föður síns sem höfuð ættarinnar.
Börnum yngri en 25 ára og öðrum nánum ættingjum mafíuforingja verður gefinn kostur á að byrja nýtt líf, fá nýtt heimili í annarri borg, ganga í annan skóla og, ef nauðsyn krefur, nýtt nafn og auðkenni.
Yfirvöld gera ráð fyrir að um 400 börn úr mafíufjölskyldum muni skrá sig til leiks ár hvert í átakið, sem ber nafnið Frelsi til að velja (Liberi di Scegliere).
„Þetta eru gríðarmikilvæg lög sem gætu umbreytt lífi hundraða kvenna og barna,“ hefur breska blaðið Guardian eftir Roberto Di Bella. Hann hefur getið sér gott orð fyrir baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Eftir að hann var skipaður dómari við ungmennadómstól í Reggio Calabria árið 2011 kom hann á fót kerfi þar sem hægt var að koma börnum mafíósa í fóstur til 18 ára aldurs, ef foreldrar blönduðu börnum sínum í glæpastarfsemi.