Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fór nýverið í leyfi frá störfum og tók því Rúnar Sigurjónsson, fyrsti varaþingmaður Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, sæti á þinginu.
„Það var fallegur dagur í morgun þegar ég var að leggja af stað niður á Alþingi, en ég er um þessar mundir sitjandi varaþingmaður. Mér fannst því skemmtileg tilbreyting að rúlla bara niður í þinghús á Gamla - Chevrolet og leggja honum í bílageymslu þingsins, sem klárlega vakti kátínu meðal annara þingmanna og starfsfólks þingsins,“ skrifaði Rúnar í færslu á Facebook í gærmorgun.
„Það er mér til efs að svo gamalt ökutæki hafi verið nýtt sem „embættisbifreið“ þingmanns áður, en sá gamli fagnaði nýlega 95 ára aldri, smíðaður í Kansas City í Bandaríkjunum snemma á árinu 1931,“ skrifaði hann jafnframt.
Rúnar hefur verið í Flokki fólksins í þó nokkurn tíma. Hann var í fimmta sæti á lista flokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum bæði 2022 og 2026 og var í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í Alþingiskosningunum 2024 á eftir Ingu Sæland og Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur. Þá skipaði Inga Sæland hann sem varamnn í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.