Maðurinn sem féll í Ölfusá í gærkvöld er látinn. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook.
Tildrög þess að maðurinn hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.
Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í gærkvöld um að maður hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar kom fram að hann hefði fundist neðar í ánni eftir stutta leit.
Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík með þyrlu Gæslunnar.