Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu í tilkynningu.„Nú á sjöunda tímanum í kvöld barst tilkynning um meðvitundarlausan einstakling við Háafoss. Viðbragðsaðilar voru boðaðir á fyrsta forgangi. Einstaklingurinn var látinn þegar að var komið,” segir í tilkynningunni.Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss. Maðurinn var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur.Umfangsmikilli en árangurslausri leit að ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað á þriðjudaginn síðasta var frestað á miðvikudagskvöldið. Ekki liggur fyrir hvort um sama mann sé að ræða.Fréttin hefur verið uppfærð.
Maðurinn fannst látinn í gilinu - Vísir