Pálína Björk M. Pálsdóttir veiktist og missti úr vinnu eftir að hafa borðað Vogaídýfu.
Ídýfan var síðar innkölluð, því það stóð ekki á umbúðunum að hún inniheldur hveiti.
Pálína er með Celiac-sjálfsofnæmissjúkdóm og segist því treysta á að innihaldslýsingar á matvörum séu réttar.
Hún telur að matvælaframleiðendur séu ekki nægilega meðvitaðir um þá hættu sem getur skapast við snefilmagn af ofnæmisvaldi í vörum sínum.
Margra daga veikindi og fjarvera úr vinnu
Pálína segist hafa fengið sér Vogaídýfu ásamt fjölskyldu sinni. Daginn eftir hafi hún fengið mikið mígreniskast og verið mjög lasin næstu þrjá daga.
Hún fékk útbrot, magabólgur og var slöpp og þreytt í lengri tíma.
„En ég tengdi þetta ekki við Vogaídýfuna út af því ég las aftan á hana, það átti ekki að vera neitt í henni.“
Nokkrum dögum síðar innkallaði svo Mjólkursamlag KS nokkrar framleiðslulotur af ídýfu, vegna þess að hún reyndist innihalda hveiti, sem ekki var tilgreint í innihaldslýsingu.
Pálína var greind með Celiac-sjálfsofnæmissjúkdóminn fyrir þremur árum, eftir að hafa þjáðst af mígreni frá unga aldri.
Vegna sjúkdómsins þarf hún að treysta á að innihaldslýsingar á matvörum séu að öllu leyti réttar.
Einstaklingar með sjúkdóminn þurfa að vera á 100% glútenlausu fæði þar sem engin lyf eru til við honum.
Og það þarf lítið magn til að vekja slæm einkenni.
„10 miligrömm af glúteni nægja til að vekja þetta ofnæmissvar, til þess að setja það aðeins í samhengi þá er það 1/350 hluti af venjulegri brauðsneið.“
Vill að framleiðendur séu meðvitaðri um skyldur sínar og ábyrgð
Framleiðendum er skylt að merkja matvæli með lista yfir innihaldsefni. Auk þess skulu ofnæmis- og óþolsvaldar vera feitletraðir.
Pálína vill að matvælaframleiðendur séu meðvitaðri um skyldur sínar og ábyrgð. Hún segir það ljóst að enginn framleiðandi ætli sér að vanmerkja matvæli sín, og valda öðru fólki skaða, en mikilvægt sé þó að koma í veg fyrir að svona mistök eigi sér stað.
„Þetta er bara mjög mikið mál fyrir fullt af fólki því það er fullt af fólki með Celiac.“
Pálína hefur heyrt af fleirum sem fengu slæm einkenni eftir að hafa borðað ídýfuna.
„Maður er að gera allt rétt, ég tek ekki áhættur þannig. Ég les á allt. Þá finnst mér að maður verður að geta treyst því að innihaldslýsingar séu réttar.“
Mjólkursamlag KS segir ekkert glúten hafa verið í hveitinu
Í skriflegri yfirlýsingu frá Mjólkursamlagi KS, vegna málsins, eru mistökin hörmuð. Breytingar hafi verið gerðar á kryddblöndu sem notuð er í ídýfuna og framleiðandi kryddblöndunar hafi ekki gert KS viðvart um þær breytingar.
Þá segir jafnframt að málið sé tekið alvarlega, varan hafi verið innkölluð og endurmerkt. Þá sé verið að skoða verkferla varðandi ofnæmisvalda, upplýsingar frá byrgjum og yfirferð merkinga.
Í glútenmælingu hafi ekkert glúten fundist í vörunni.
„Við viljum jafnframt taka það fram að við höfum sent vöruna í glútenmælingu og þær niðurstöður hafa sýnt fram á að ekkert glúten finnst í vörunni.“