Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings
Landsréttur felldi úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir Skúla Tómassyni vegna andláts sjúklings sem hann hafði umsjón með árið 2019. Málinu var vísað frá þar sem talið var að úrskurðu Landlæknis um sviptingu starfsleyfis væri ígildi refsingar fyrir sama brot.
Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir Skúla Tómassyni en máli hans var vísað frá í júlí þar sem hann var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Málinu var vísað frá á þeim forsendum að Skúli hefði þegar sætt refsingu fyrir brot sitt með ákvörðun Landlæknis sem svipti hann tímabundið starfsleyfi. Það mætti því ekki höfða annað mál þar sem honum hafði þegar verið refsað fyrir brotin sem hann var ákærður fyrir.
Agaviðurlög, ekki refsing
Í úrskurði Landsréttar sem féll 27. ágúst síðastliðinn segir að þótt svipting starfsleyfis sé eðli málsins samkvæmt þungbær sé ekki hægt að líta svo á að eðli, markmið og umfang þeirra viðurlaga feli í sér refsingu eða refsikennd viðurlög, heldur sé um agaviðurlög á grundvelli stjórnsýsluréttar að ræða.
Niðurstaðan er því sú að úrskurður Héraðsdóms Reykjaness er felldur úr gildi og því mögulegt að rétta yfir Skúla vegna meintra brota. …