Lúsmýið setur mark sitt á sumarfrí landsmanna. Skordýrafælur eru víða uppseldar, kláðabanar og viftur rjúka út og virðist fólk bitið meira en oft áður. Sérstaklega ber mikið á bitnum landsmönnum á Norður- og Austurlandi þar sem veður hefur verið með besta móti.
Fjölmargir gestir eru á Hömrum á Akureyri og Hallormsstað á Fljótsdalshéraði.
„Það er búið að vera smekkfullt, það eru búin að vera skipti yfir helgina en það er voðalega fljótt að fyllast aftur. Ef veðrið verður svona heldur þetta bara svona áfram,“ segir Sigurjón Lyngdal Benediktsson, tjaldvörður í Hallormsstað. Góð stemning er meðal gesta þrátt fyrir að lúsmý herji á fólk.
Skordýrafælur og bitvarnir seljast upp
Skordýrafæla og bitvörn seldist upp í Lyfju á Egilsstöðum um helgina og mikil sala er í apótekum á Akureyri.
„Við erum eiginlega að moka þessu út, öllum tegundum. Við gerum okkar besta, það eru að koma nýjar tegundir inn og svona og þetta selst bara allt, menn prufa allt,“ segir Gauti Einarsson í Akureyrarapóteki. Að hans mati er fólk meira bitið en fyrri sumur:
„Fólk er bara mjög illa bitið, oft og tíðum. Það er áberandi að við erum að fá útlendinga sem hafa orð á því að þeir hafi ekki búist við því að það séu skordýr á Íslandi. Fólk sem er að koma frá Suður-Evrópu og er bara illa bitið og kvartar.“
Mikil sala í viftum og bitpennum
Elko á Akureyri hefur selt viftur og kláðabana í kassavís frá því að góða veðrið kom norður. Að sögn Hauks Hergeirssonar verslunarstjóra er mikið spurt.
„Það er bara mikil eftirspurn eftir viftum og bitpennum. Svo er þetta bara fyrirbyggjandi, fólk er að taka þetta með sér í fríið og vera tilbúið.“