Skrifstofum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verður lokað um tíma á morgun vegna fundar starfsfólks sem Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur boðað til.
Fundurinn er haldinn vegna óvissu sem ríkir um framtíð heilbrigðiseftirlitsins, störf starfsfólks og kjör þeirra vegna lagabreytinga sem eru til meðferðar á Alþingi, að því er segir í tilkynningu frá stjórn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi.
Lokað verður frá 10 til 13.
Breytingarnar fela í sér færslu á verkefnum frá heilbrigðisnefndum og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga og til ríkisstofnana.
„Starfsfólk heilbrigðiseftirlits hefur hins vegar enn ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um hvernig breytingarnar verða framkvæmdar, hvaða störf verða til, hvar þau verða staðsett eða hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á kjör og starfsaðstæður,“ segir í tilkynningunni.
Svara brýnum erindum eftir lokunina
Þá segir að með fundinum vilji Félag íslenskra náttúrufræðinga skapa vettvang fyrir starfsfólk til að fara yfir stöðu málsins, réttindi sín og þá óvissu sem sé uppi.
„Jafnframt er mikilvægt að stjórnvöld geri starfsfólki heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga skýra grein fyrir því hvernig staðið verði að breytingunum og hvaða áhrif þær muni hafa á störf, kjör, starfsstöðvar og framtíð sérfræðistarfa um land allt.“
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda. Brýnum erindum verður sinnt þegar skrifstofurnar opna að nýju.