Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni og eru umferðarljós á gatnamótunum sögð óvirk. Unnið sé að viðgerð en ekki ljóst hversu langan tíma hún muni taka. Vegagerðin biður ökumenn um að sýna aðgát á svæðinu við þessar aðstæður. Áður hafði verið greint frá því að bilunin væri að valda umferðartöfum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út að búast megi við umferðartöfum vegna bilunarinnar. Ökumenn eru minntir á að fylgja umferðarmerkjum á staðnum.
Þá leggur lögreglan til að ökumenn íhugi að breyta ferðaáætlun sinni ef fyrirhugað er að aka um umrætt svæði nú síðdegis.
Fréttin hefur verið uppfærð.