Sama lögregluembætti og hefur sætt harðri gagnrýni vegna viðbragða sinna við morðinu á hinum 18 ára gamla Henry Nowak, setti nýlega fram nýja aðgerðaáætlun þar sem sérstök áhersla er lögð á kynþátt, þjóðernisuppruna og samskipti lögreglu við minnihlutahópa.
Lögreglan handtók fórnarlamb stunguárásar eftir ásakanir um rasisma – Lést í handjárnum
Hampshire og Isle of Wight lögregluembættið hefur undanfarna daga verið í sviðsljósinu eftir að birtar voru upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem komu fyrst á vettvang eftir að Nowak var stunginn til bana í Southampton. Á upptökunum sést Nowak segja lögreglumönnum að hann hafi verið stunginn en lögreglan brást ekki strax við eins og um lífshættulega árás væri að ræða heldur tók vitnisburð morðingjans góðan og gildan, handjárnaði Nowak þrátt fyrir að hann gæti ekki andað og marg ítrekaði að hann hefði verið stunginn.
Málið hefur vakið mikla reiði í Bretlandi og meðal gagnrýnenda hefur verið haldið fram að lögreglan hafi ítrekað sýnt merki um svokallaða „two-tier policing“, þar sem mismunandi hópar njóti sérmeðferðar eftir uppruna og kynþætti.
„And-kynþáttafordómar í öllu sem hún gerir“
Í nýrri Race Action Plan aðgerðaáætlun sinni, eða kynþáttaáætlun, lýsir lögreglan því yfir að hún hafi „núll umburðarlyndi gagnvart kynþáttafordómum“ og að hún ætli að sýna „and-kynþáttafordóma í öllu sem hún gerir“.
Jafnframt segir lögreglan að hún vilji skilja betur áhrif fyrri mistaka gagnvart minnihlutahópum og byggja upp aukið traust meðal þeirra samfélaga.
Í áætluninni er lögð sérstök áhersla á að fjölga starfsmönnum úr svörtum og öðrum minnihlutahópum, auka velgengni þeirra innan lögreglunnar og tryggja að lögreglan endurspegli betur fjölbreytileika samfélagsins.
Sérstakur stuðningur við minnihlutahópa
Lögreglan segir jafnframt að hún ætli að bæta sérstaklega þjónustu og stuðning við brotaþola úr minnihlutahópum, en morðingi Nowak er einmitt úr minnihlutahópi og hélt því fram að hann hefði orðið fyrir kynþáttafordómum af hendi Nowak.
Þá hyggst hún leggja sérstaka áherslu á að tækla glæpi sem valda mestum skaða innan svartra samfélaga og annarra minnihlutahópa. Einnig á að greina hvort mismunur sé á viðbrögðum lögreglu og niðurstöðum mála eftir uppruna brotaþola.
Lögreglan segist vilja tryggja að þessir hópar taki í auknum mæli þátt í mótun löggæslu og ákvörðunum sem varða starfsemi hennar.
Ætla að skoða kynþáttamun
Meðal markmiða áætlunarinnar er að greina og takast á við það sem lögreglan kallar kynþáttatengt misræmi í beitingu valdheimilda.
Þar eru sérstaklega nefndar leitir á fólki, stöðvanir ökutækja og valdbeiting lögreglumanna. Ef misræmi finnst segir lögreglan að nálgun hennar verði að útskýra verklagið eða breyta því.
Gagnrýnendur tengja stefnuna við Nowak málið
Gagnrýnendur segja að áætlunin staðfesti þá hugmyndafræði sem liggi að baki því sem kallað hefur verið „two tier policing“ í Bretlandi.
Í umræðunni um Henry Nowak málið hafa sumir gagnrýnendur gengið svo langt að halda því fram að lögreglumenn hafi haft meiri áhyggjur af ásökunum um kynþáttafordóma en af því að ungur maður lá alvarlega særður á vettvangi og að lögreglumenn hafi ekki sinnt augljóslega særðum einstaklingi á vettvangi heldur rætt fyrst við aðilann sem stakk hann, einmitt vegna þessara reglna.
Þeir benda á að sama lögregluembætti sé nú að kynna stefnu sem gerir kynþátt og þjóðernisuppruna að mikilvægu viðfangsefni í stefnumótun sinni.