Kynferðisbrotin þrjú sem tilkynnt var um að átt hefðu sér stað á Kótelettunni á Selfossi um liðna helgi eru í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn staðfestir það í samtali við mbl.is.
Spurður hvort byrlunum hafi verið beitt í einhverjum málanna segir Jón Gunnar allt til rannsóknar en segist ekki geta staðfest neitt slíkt.
Bara tilkynningar til rannsóknar
Segist hann í raun takmarkað geta tjáð sig um rannsókn málanna þriggja.
„Þetta eru bara tilkynningar sem koma þarna upp og eru til rannsóknar,“ segir Jón Gunnar.