Eigandi bílsins mun ekki geta fengið skráningarmerkin til baka fyrr en greiðslu tryggingarinnar er lokið. Viðkomandi mun síðan þurfa að sækja merkin á Samgöngustofu og greiða 1200 króna greiðslugjald til að fá þau afhent.
Þá komst ökumaður miðsvæðis í Reykjavík í kast við lögreglu og var handtekinn. Sá var undir áhrif áfengis og við skoðun kom í ljós að hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Maðurinn verður vistaður í fangaklefa uns hann verður hæfur í skýrslutöku.
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað á veitingastað miðsvæðis. Málið er í rannsókn. Þá var lögregla kölluð að fjölbýlishúsi í Hlíðum þar sem tilkynnt hafði verið um óviðkomandi mannaferðir. Þegar lögregla kom á staðinn hafði hurð í anddyri verið spennt upp.
Mikil innbrotahrina hefur geisað miðsvæðis í borginni. Í viðtali í kvöldfréttum okkar á fimmtudag sagði formaður Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur að jafnvel væri reynt að brjótast inn til fólks um hábjartan dag og krafði lögregluna um frekari aðgerðir.
Frá mánaðamótum hafa meira en sextíu innbrot verið tilkynnt miðsvæðis í Reykjavík.