Lögmannsstofan Lagaland hefur boðið meðlimum Facebook hópsins Pabbatips að senda lögfræðilegar fyrirspurnir sér að kostnaðarlausu. Frumkvæðið hefur fengið afar jákvæð viðbrögð innan hópsins, þar sem margir feður hafa um langt skeið leitað ráða vegna erfiðra forræðis- og umgengnismála.
Í færslu sem Sverrir Sigurjónsson birti fyrir hönd Lagalands kemur fram að lögmenn stofunnar hafi tekið eftir því að fjölmargar spurningar í hópnum snúi að lögfræðilegum álitaefnum og að svörin sem menn fái séu misáreiðanleg.
„Okkur hjá Lagaland – Lögmannsstofu langar því að bjóða meðlimum síðunnar að senda okkur fyrirspurnir þar sem þið getið spurt um lögfræðilega stöðu ykkar,“ segir í færslunni.
Hann gefur upp ákveðið lykilorð sem meðlimir hópsins geta svo notað til að sleppa við rukkun vegna fyrirspurnarinnar.
Þar kemur jafnframt fram að ef mál reynast þess eðlis að þau krefjist ítarlegri vinnu eða meðferðar verði viðkomandi upplýstur um það og honum gerð grein fyrir kostnaði.
Margir feður leita lögfræðiaðstoðar
Á undanförnum misserum hefur verið áberandi að fjölmargir feður leita sér aðstoðar vegna forræðis-, lögheimilis- og umgengnismála í hópnum, þar sem feður deila reynslu sinni og leita ráða hjá öðrum sem hafa gengið í gegnum sambærileg mál.
Færslan frá Lagalandi virðist því hafa hitt í mark. Viðbrögð meðlima hafa verið afar jákvæð og margir hafa lýst ánægju með að geta fengið fyrstu leiðsögn um rétt sinn án kostnaðar.