Paul Watson-samtökin hafna kröfu Faxaflóahafna um að flytja skipið Bandero sjálf brott úr Akraneshöfn og þvertaka fyrir að leggja út fyrir kostnaði af drætti þess þaðan til Reykjavíkur vegna yfirvofandi illviðris.
Skipið var dregið milli hafnanna á sjötta tímanum í dag, þrátt fyrir andmæli. Bjarni Már Magnússon, lögmaður samtakanna segir óréttlætanlegt að leggja allan kostnað á þau. Staðsetning þess á Akranesi sé að undirlagi íslenskra yfirvalda, sem samökin segja þau hafa valið að fara af pólitískum ástæðum.
Skipið sé á Íslandi í óþökk samtakanna og því hafi verið óhætt í Reykjavík áður en yfirvöld ákváðu að flytja það óumbeðið til Akraness. Samtökin muni þó ekki standa í vegi fyrir nauðsynlegum aðgerðum en taki engan þátt í þeim.
Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður Faxaflóahafna sendi í morgun bréf til Bjarna Más þar sem krafist var að skipstjóri og áhöfn yrðu komin um borð fyrir klukkan eitt í dag.
Þess væri krafist svo unnt væri að sigla skipinu til Reykjavíkur með aðstoð dráttarbáts og hafnsögumanns eða að eigandi veitti tafarlaust og ótvírætt samþykki fyrir að það yrði dregið sem mannlaust fley á kostnað eiganda.
Verði því ekki sinnt umsvifalaust neyðist Faxaflóahafnir til að koma skipinu í skjól á ábyrgð og kostnað eiganda. Paul Watson-samtökin samþykkja það ekki í svari til Faxaflóahafna, heldur skuli íslensk stjórnvöld bera kostnað af öllu tjóni sem kunni að verða.
Í gærkvöld kom í ljós að enginn skipstjóri var um borð, að því er segir í bréfi Gísla, þegar dráttarbáturinn Magni var sendur til aðstoða við flutning Bandero. Því var ekki hægt að sigla skipinu til Reykjavíkur.
Bjarni Már Magnússon segir ekki réttlætanlegt að leggja allan kostnað á samtökin og að íslensk yfirvöld hafi sjálf búið til þessa stöðu. Hann hefur sent Faxaflóahöfnum ítarlegt svarbréf fyrir hönd Paul Watson-samtakanna.
„Skipið var upphaflega í öruggri legu í Reykjavík og var flutt til Akraness gegn vilja eigenda skipsins. Á þessum tíma er íslenska ríkið að vísa lykilmönnum áhafnarinnar úr landi, skipstjóra og yfirvélstjóra, og setja á þá endurkomubann,“ segir Bjarni.
Samtökin líti þannig á að verið sé að refsa þeim og eigendum skipsins fyrir að það liggi ómannað á Akranesi í aðstæðum sem ríkisvaldið bjó til. Þau setji öryggi og mannslíf á oddinn og standi ekki í vegi neyðarráðstafana vegna veðurs.
„En það þýðir ekki að þau samþykki að vera látin bera áhættu og kostnað af aðstæðum sem stjórnvöld og hafnaryfirvöld sköpuðu sjálf.“
Kyrrsetning að kröfu Hvals hf. hvílir á Bandero. Fyrirtækið segist hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að það þurfti að nota meira eldsneyti vegna aðgerða Banderos. Bjarni segir kyrrsetninguna hvíla á hæpnum grundvelli. „Það er nú þannig að við lögmennirnir teljum ekki að það teljist til eignatjóns.“
Ekki var heldur vitað hve margir og hverjir voru um borð. Paul Watson-samtökin segjast heldur ekki geta tekið ábyrgð á því enda hafi stjórnvöld sent helstu yfirmenn úr landi. Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn Bandero í júlí eftir að áhöfnin sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins Hvals 9.
Skipið hefur síðan legið við höfn, fyrst í Reykjavík og síðan á Akranesi. Samgöngustofa aflétti farbanni yfir Bandero í ágústlok og skömmu síðar var sá síðasti úr áhöfninni sendur úr landi.
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Bjarna Más og því að skipið hafi verið dregið frá Akranesi til Reykjavíkur.