„Já, það er útséð um að framkvæmdir hefjist á árinu 2026,“ segir Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnastjóri Sundabrautar hjá Vegagerðinni, í samtali við Morgunblaðið í dag.
Ljóst er að enn meiri tafir verða á framkvæmdum við Sundabraut en verkefnið hefur verið á dagskrá í meira en hálfa öld. Þegar ríki og borg sömdu um byggingu brautarinnar árið 2021 var talið mögulegt að framkvæmdir gætu hafist á þessu ári, en nú er ljóst að svo verður ekki.
Í Morgunblaðinu í dag er farið yfir málið, meðal annars ástæður þessara miklu tafa og hvort göng eða brú verði niðurstaðan. Segir Helga að ríki og borg hafi gefið það út að álit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, verði lagt til grundvallar ákvörðun um brú eða göng við þverun Kleppsvíkur.
Aðspurð hvenær Vegagerðin áætli nú að framkvæmdir geti hafist segir hún að Vegagerðin telji líklegt að útboðsferli samvinnuverkefnis um Sundabraut taki um tvö ár frá því að auglýst er eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í verkefninu þangað til samningur um verkefnið liggur fyrir.
„Þá tæki við 6-7 ára hönnunar- og framkvæmdatími. Með fyrirvara um ákvarðanatöku og útboðsform gætu framkvæmdir þá hafist á árinu 2029.“