Ljósanótt var sett í skrúðgarðinum í Keflavík í morgun. Nemendur í leik- og grunnskólum bæjarins settu hátíðina í heldur vætusömu veðri. Þrátt fyrir rigninguna var líf og fjör.
Guðlaug María Lewis verkefnastjóri Ljósanætur segir Ljósanæturgesti eiga von á miklu fjöri um helgina, fjöbreytt dagskrá sé í boði fyrir alla aldurshópa.
„Í dag opna listasýningar víða um bæinn og þá fyllist hann af fólki, á morgun er svo kjötsúpan sem er ómissandi liður á Ljósanótt. Á laugardag er svo náttúrulega árgangagangan okkar sem er einstakt fyrirbæri þar sem árgangarnir safnast saman á Hafnargötu og flykkjast saman á hátíðarsvæðið.“
Hátíðinni er svo slúttað með stórtónleikum og flugeldasýningu á laugardagskvöld.
„Utan á allt þetta hlaðast líka tugir viðburða,“ segir Guðlaug.