„Hljóðið í fólki er náttúrulega frekar þungt,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR um fund samninganefnda verkalýðsfélaganna VR, LÍV og fagfélaganna. Fundurinn hófst klukkan hálf sex í kvöld. Hann sitja hátt í 60 manns frá fimm samninganefndum.
Þar eru meðal annars rædd örlög kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu þegar ársverðbólga mældist 5,6% í ágúst. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kváðu á um að segja mætti þeim upp ef verðbólga færi yfir 4,7% í ágúst.
„Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðbólga og fólk situr uppi með mjög mikinn húsnæðiskostnað sem hefur aukist á tímabili gildandi kjarasamninga. Þetta er sú staða sem við þurfum að takast á við næstu vikurnar,“ sagði Halla í sjónvarpsfréttum.
Lítill tími til stefnu
Halla segir fundarmenn velta fyrir sér hvað þurfi til þess að kjarasamningar geti haldið.
„Það er okkar ábyrgð að koma lausnamiðuð til leiks og við viljum gera það en það er líka hugur í fólki um að ef ekkert verður að gert þá gætum við verið í þeirri stöðu að þurfa að segja upp kjarasamningum.“
Halla segir lítinn tíma til stefnu en taka þarf ákvörðun um uppsögn samninga í síðasta lagi 8. október.
„Næstu skref eru þau að við erum að ná okkur saman hérna og skerpa á okkar kröfum. Það er í gangi þríhliða samtal á vegum stjórnvalda og við eigum fund með Samtökum atvinnulífsins á fimmtudaginn þar sem við munum fara yfir vinnuna framundan en það skiptir mjög miklu máli að hér mæti allir lausnamiðaðir og tilbúnir til leiks og til þess að láta verkin tala.“