„Lítil stúlka með bollukinnar og svart hár mætti í heiminn kl. 05:01 þann 14. júlí. Móður og dóttur heilsast vel. Svo vel að hún Dísa mín mætti galvösk í brúðkaup í gær. Ekki allar hetjur þurfa skikkju en ég ákvað samt að panta eina af Temu fyrir hana Dísu mína,“ segir í fallegri færslu sem Júlí birti á Facebook.
Þar skrifar hann einnig að „hún bar sig vel eins og naglinn sem hún er og henti í brandara þegar hausinn stóð hálfur út í fæðingarstofunni. Nú er bara að njóta,“ en hamingjuóskum rignir inn undir færslu foreldranna.
Fyrir eiga þau hvort sinn strákinn en stúlkan er annað barn þeirra saman. Þau Þórdís og Júlí voru í sama bekk í Listaháskóla Íslands og höfðu verið vinir í langan tíma áður en ástin tók völdin. Þau trúlofuðu sig í maí árið 2022.