8 voru drepnir í miklum árásum Rússa á borgina Dnipro í Úkraínu undanfarinn sólarhring. 49 særðust í linnulausum árásunum sem dundu á borginni í um 20 klukkustundir. Árásirnar beindust gegn íbúðarhúsnæði, fyrirtækjum og orkuinnviðum. Borgarstjóri Dnipro, Borys Filatov, segir árásirnar þær umfangsmestu sem hafi verið gerðar á borgina. Aðstoðarborgarstjóri Dnipro var einn þeirra sem særðust í árásinni.
Þá særðust einnig 10 í árásum Dnipro-Petrovsk héraðs, og þá var einn drepinn og fjórir særðust í árásum sem gerðar voru á litla farþegarútu í Zaporizhzhia-héraði.
Dnipropetrovsk-hérað er mikilvægt iðnaðarhérað og þaðan eru um 100 kílómetrar að víglínunni. Rússneskar hersveitir hafa náð litlu svæði af héraðinu, sem er ekki eitt þeirra héraða sem Rússar hafa innlimað eftir að innrásin hófst.
Úkraínski herinn hefur aukið árásir sínar á skotmörk innan Rússlands, þar með talið á orkuinnviði. Einn almennur borgari særðist í einni slíkri árás í Kursk-héraði sem liggur að landamærum Úkraínu. Þá sagði héraðsstjóri Belgorod-héraðs, Vyacheslav Gladkov, að einn hefði verið drepinn og annar hefði særst í héraðinu í árás úkraínska hersins.
Þá gerði úkraínski herinn drónaárás á fjölbýlishús í Yekaterinburg, sem er ein helsta iðnaðarborg Rússlands, í yfir 1000 mílna fjarlægð frá Úkraínu. Enginn slasaðist alvarlega í þeirri árás. Í mars gerði úkraínski herinn umfangsmiklar drónaárásir í Leningrad-héraði og hafnarborgina Ust-Luga sem er ein mikilvægasta stórskipahöfn Rússa í við Finnlandsflóa.