„Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir
„Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ - Vísir
📅 2026-04-21 15:50:27👁️ 4 lesið
Athygli vakti í gær þegar Sólveig Anna gagnrýndi launahækkun Höllu sem stjórn VR samþykkti fyrir helgi. Hún sagði það skjóta skökku við að góð laun formannsins hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli hættu á að falla úr gildi.
„Það er algjörlega óásættanlegt fyrir félagsfólk Eflingar að hluti þess fjár, sem ætlað er að reka sambandið og verja hagsmuni allra sem tilheyra aðildarfélögunum, sé notaður til að niðurgreiða laun eins formanns í öðru félagi,“ skrifar Sólveig Anna.
Allt á einn veg
Halla bregst við gagnrýni Sólveigar Önnu í Facebook-færslu þar sem hún segir hana ekki koma mér á óvart. Sólveig Anna hafi haft sterkar skoðanir á á mörgu sem varði VR og hana sem persónu.„Ég er ítrekað spurð um hvað þetta sé „á milli ykkar“, en staðreyndin er sú að það er nákvæmlega ekkert á milli okkar. Þetta er allt á einn veg.Ég hef ekki tölu á þeim Facebook-færslum og fjölmiðlaviðtölum Sólveigar Önnu sem hafa fjallað um mig eða á þeim orðum sem hún hefur notað um mig. Hún hefur skammast yfir því hvað ég segi, yfir því hvað ég segi ekki, yfir því hvað hún segir að ég hafi einhvern tímann sagt (og það er iðulega farið ranglega með) og yfir þeim sjónarmiðum, jafnvel hvötum, sem hún gerir mér upp,“ skrifar Halla.
Þá segir hún að Sólveig Anna hafi ítrekað kvartað yfir því að hún sé yfirleitt kölluð til álits í fjölmiðlum og reynt að fá þá til að hætta að ræða við sig og tala frekar við hana. „Í grunninn vill hún ekki að ég sem formaður VR tjái mig og tali máli félagsfólks. Eitt skýrasta dæmið um þetta eru ítrekaðar athugasemdir hennar við að ég hafi nálgast umræðu um þjónustuskerðingar og gjaldskrárhækkanir á leikskólum út frá vinnandi foreldrum, sem eru félagsfólk í VR, en ekki út frá þeim hluta félagsfólks Eflingar sem starfar á leikskóla og er samþykkt nálgun formannsins í málaflokknum.“
Laun síðasta formanns hærri
„Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu. Ég hef almennt haft þá afstöðu að svara ekki. Ég tel það ekki gagnast VR og alls ekki verkalýðshreyfingunni í heild sinni,“ skrifar Halla.Hún segir takmörk fyrir því hversu mikið þvaður sé hægt að láta viðgangast án þess að svara. „Um launamál í VR er það að segja að launanefnd og stjórn VR hafa verið að koma á gagnsæi er varðar heildarkjör formanns félagsins. Þau voru ógagnsæ og óþarfur hvati til að gegna mörgum embættum, óháð því hvað þjónar hagsmunum félagsins best hverju sinni.“Hún segir að eftir ákvörðun stjórnar, sem hún hefði ekki aðkomu að, séu heildarlaun fyrir störf formanns VR 1.913.000 krónur, en voru áður 1.724.064 krónur. Hennar laun séu lægri en laun forvera hennar og að heildarlaun hans væru í dag 2.119.924, „auk einhvers konar starfslokaréttinda sem ekki var hægt að réttlæta og voru afnumin.“Laun formanns VR séu ýmist lægri eða hærri en laun annars forystufólks í verkalýðshreyfingunni.„Það hvort aðrar launagreiðslur gangi til VR eða komi til frádráttar frá mínum launum er útfærsluatriði sem hefur ekkert með Eflingu eða Sólveigu Önnu að gera. Það hefur heldur engin áhrif á ASÍ, öfugt við það sem hún heldur fram. “Þetta eigi við um þau laun sem hún hafi fengið fyrir að gegna embætti varaforseta ASÍ en þær gegna báðar því embætti. Í því starfi felist að sitja tvo fundi í mánuði á hefðbundnum vinnutíma og þeir taka að jafnaði á milli 15 og 45 mínútur.„Fyrir það fáum við varaforsetar 243.900 kr. á mánuði sem er nú hluti af heildarkjörum mínum fyrir að gegna formennsku í VR. Fjölgun varaforseta var einmitt eitt af keppikeflum Sólveigar Önnu fyrir nokkrum árum, en þeir hafa þó ekkert lagalegt hlutverk innan ASÍ annað en að gegna í forföllum forseta.“Halla segir laun fyrir störf forystufólks í stéttarfélögum hápólitískt mál og jákvætt að stjórn VR tryggi gagnsæi í þeim efnum. „Þetta ætti að vera til eftirbreytni fyrir önnur félög, frekar en fóður í upphrópanir á samfélagsmiðlum. Laun formanns VR eru svo sannarlega ekki leyndarmál, þau eru birt í ársskýrslu félagsins. Það sama á ekki við um Eflingu.Þessi umræða af hálfu formanns Eflingar snýst hins vegar ekki um ákvarðanir stjórnar VR heldur persónulega herferð hennar gegn félaginu og mér sem persónu. Rætur þessarar þráhyggju liggja í því að hún hefur viljað að önnur félög innan ASÍ setji hagsmuni síns eigin félagsfólks til hliðar og heyi heldur kjarabaráttu á forsendum sem þóknast hagsmunum Sólveigar Önnu.“Halla bendir á að hún sé kjörin til að gæta hagsmuna félaga VR og muni halda því áfram af einurð. „Ég mun hvorki standa né sitja, þegja né tala, eftir því sem þóknast Sólveigu Önnu.“
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosningann...
Úkraína og Rússland skiptust á 540 stríðsföngum, eða 270 af hvoru þjóðerni, á föstudag. Meðal fanga sem sleppt var úr haldi Rússa voru 261 hermaður og...
Luiz Inacio Lula da Silva, sitjandi forseti og leiðtogi Verkamannaflokksins, er sigurvegari forsetakosninganna í Brasilíu, en síðari umferð kosningann...
Vessandi forarsvað þar sem áður stóðu 250.000 tréSkammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandl...
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, María Corina Machado, er komin til heimalandsins eftir tæpt ár í útlegð....
Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf ...
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja...
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkraínskur varnarmálaráðherra segir tenginguna nú stöðuga. Elon Musk segir að her landsins...
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...