Að bjóða góðan dag er rótgróin og kurteis kveðja. Góðan daginn verður meira en kveðja í sveitarstjórnarkosningunum í vor þegar Góðan daginn framboðið býður fram í Reykjavík í fyrsta sinn.
Framboð hófst á kaffispjalli fólks sem vill breytingar í borginni. „Þetta nafn ber í sér ákveðna jákvæðni og bjartsýni og bara skemmtilegheit, ég held að það sé ástæðan fyrir því að þetta nafn var valið fremur öðrum,“ segir Ingimar Þór Friðriksson, tölvunarfræðingur og oddviti framboðsins.
Hann segir léttleika búa að baki nafngiftinni og að frambjóðendur hafi ekki hafa íhugað að nafnið gæti valdið usla. „En ég fékk smá skot á mig í fyrsta spjalli okkar oddvitanna.“ Aðrir oddvitar hafa gert góðlátlegt grín að framboðinu fyrir að „ræna“ kosningunum með því að bjóða stanslaust góðan daginn.
„Þetta er náttúrulega G-listi Góða dagsins, í eignarfalli. Á atkvæðaseðlinum mun þetta birtast þannig, G-listi Góða dagsins,“ segir Ingimar.
Er áróður að bjóða góðan dag á kjörstað í Reykjavík?
Áróður á kjörstað er bannaður og dæmi eru um að athugasemdir hafi verið gerðar fyrir kjördag. Í sveitarstjórnarkosningunum 2018 voru rauðir deplar á hurðum Ráðhúss Reykjavíkur fjarlægðir þar sem þeir þóttu minna um of á merki Samfylkingarinnar.
Yfirkjörstjórn í Reykjavík telur ekki tilefni, enn sem komið er, til að gera athugasemd við að fólk bjóði góðan dag á kjörstað.
Sjálfur hefur Ingimar ekki áhyggjur af áróðri á kjörstað.
Ég held að við verðum að treysta kjósendum betur en svo að þeir líti á almenna kveðju milli borgaranna sem áróður.
„Að sjálfsögðu bjóða menn góðan daginn þegar menn mæta á kjörstað, en ég held nú að það sé nú engin hætta á því. Ég held að við verðum að treysta kjósendum betur en svo að þeir líti á almenna kveðju milli borgaranna sem áróður, ég trúi því nú ekki.“
Býður oftar góðan dag
Góðan daginn-framboðið er nýtt en Góðan daginn-dagurinn var haldinn nokkrum sinnum í borgarstjórnartíð Besta flokksins, að frumkvæði Jóns Gnarr borgarstjóra.
Á Góðan daginn-deginum er fólk hvatt til að vera sérstaklega gott við náunga sinn og bjóða honum góðan daginn. Markmiðið var að auka náungakærleik og viðhalda góðri íslenskri hefð. Fyrsti Góðan-daginn dagurinn var 3. september 2010. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur ekki verið haldið sérstaklega upp á daginn síðustu ár.
Ingimar viðurkennir að hann bjóði oftar góðan dag eftir að hann tók sæti sem oddviti Góðan daginn framboðsins.
„Oft nota ég „hæ“ en ég er að reyna að tileinka mér það að segja alltaf góðan daginn, allavega fram á kjördag, enda er það mjög skemmtileg íslensk hefð.“