Vinkonur Steinunnar Lóu Hafþórsdóttur, sem lést við fæðingu sonar síns hinn 19. maí síðastliðinn, hafa sett af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar.
Frá þessu er greint á Facebook og þar kemur fram að sonur hennar dvelji enn á vökudeild Landspítalans vegna súrefnisskorts í fæðingu. Auk nýfædds sonar skilur Steinunn, sem var nýorðin þrítug, eftir sig unnustann Hjalta og Amalíu Erlu, stjúpdóttur sína.
„Það er ólýsanlega sárt að þurfa að kveðja svona einstaka, fallega og kærleiksríka manneskju alltof snemma.
Steinunn snerti líf svo margra með hlýju sinni, fallega brosinu og þeirri einstöku nærveru sem fylgdi henni hvert sem hún fór. Orðin duga varla til að lýsa missinum sem við finnum öll fyrir,“ segja vinkonur hennar.
Andlát Steinunnar Lóu var auglýst í Morgunblaðinu í dag. Þar kom fram að útför hennar verði gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 5. júní næstkomandi.
„Við vinkonur Steinunnar Lóu höfum ákveðið að setja af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar til að létta undir á þessum erfiða tíma, svo þau geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli núna - að syrgja, standa saman og vera hjá litla drengnum sínum.
Fjölskyldan mun að öllum líkindum standa frammi fyrir miklum áskorunum og erfiðleikum í lífinu vegna þessa ólýsanlega áfalls. Fram undan er langur og erfiður vegur, bæði andlega, tilfinningalega og fjárhagslega, og því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja þau í gegnum þennan tíma.
Hvert framlag, stórt sem smátt, skiptir máli og er dýrmætur stuðningur á þessum ótrúlega erfiðu tímum,“ segir í færslu vinkonu hennar.
Hér er hægt að leggja söfnuninni lið
Reikningsnúmer: 0702-15-053445
Kennitala: 120494-2799
Styrktarreikningurinn er á nafni Hjalta Einarssonar, unnusta Steinunnar.