Einstaklingur lést eftir að hann féll í Ölfussá í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.Viðkomandi féll í Ölfusá um kl. 19 í gærkvöldi. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslu Íslands brugðust við með hæsta forgagni. Viðkomandi fannst neðar í ánni eftir stutta leit og var bjargað á land og í framhaldi fluttur á bráðamóttöku Landspítala með þyrlu gæslunnar.Tildrög þess að viðkomandi hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglu á Suðurlandi.
Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá