Lendingarbúnaður kyrrstæðrar flugvélar dróst óvænt inn á flugvél þýska flugfélagsins Lufthansa á flugvellinum í Frankfurt fyrr í dag, að sögn talskonu flugfélagsins við AFP.
Nef vélarinnar féll í kjölfarið í jörðina sem varð til þess að nokkrir starfsmenn slösuðust, en flugvélin er af gerðinni Boeing 787-9.
Atvikið átti sér stað klukkan 12:45 að staðartíma rétt áður en farþegar stigu um borð í vélina. Var förinni heitið til Los Angeles.
Áhöfnin, ásamt fleira starfsfólki, var um borð og slösuðust nokkrir. Hvorki liggur fyrir hve margir slösuðust né hve alvarlega.
Samkvæmt Aerotelegraph er vélin sem skemmdist aðeins ársgömul og var afhent Lufthansa í janúar.