Leit að erlendum ferðamanni sem sást síðast til í nágrenni við Háafoss í Þjórsárdal hefur verið frestað. Leitin hefur ekki enn borið árangur en hún hefur staðið yfir í um sólarhring. Lögreglan á Suðurlandi hefur frestað leitinni þar til fleiri vísbendingar hafa komið fram. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.
Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað sinn fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu. Eftir eftirgrennslan lögreglu var kallað eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu.
Leitarsvæðið við Háafoss er krefjandi en í tilkynningu Landsbjargar segir að mikill krapi og drulla séu á svæðinu.