Bandaríski leikarinn James Handy, sem þekktur var fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við Jumanji og Top Gun: Maverick, er látinn eftir að hann hafa orðið fyrir hnífaárás á heimili sínu í Tarzana-hverfinu í Los Angeles.
Handy var 81 árs gamall og hefur sonur kærustu hans verið handtekinn vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Los Angeles barst neyðarsímtal um klukkan 9:30 að morgni miðvikudags þar sem tilkynnt var um árás á heimili við Erwin Street. Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir Handy meðvitundarlausan í garðinum fyrir framan húsið með stungusár á brjósti.
Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinng skömmu síðar.
Lögregla hefur handtekið Michael Gledhill, 44 ára son kærustu Handy, sem bjó á heimilinu. Hann hefur verið handtekinn grunaður um morð og situr nú í gæsluvarðhaldi.
Bandarískir fjölmiðlar hafa birt upptöku úr öryggismyndavél skammt frá heimilinu þar sem Gledhill sést ganga rólega frá vettvangi áður en hann snýr aftur. Lögreglan segir að hann hafi síðar gefið sig fram við lögreglumenn sem voru að sinna útkallinu.
Ekki liggur enn fyrir hver ástæða árásarinnar var, en nágrannar hafa sagt við fjölmiðla að deilur hafi átt sér stað á heimilinu nóttina áður.
Handy átti að baki langan og farsælan feril í kvikmynda- og sjónvarpsheiminum. Hann hóf leikferil sinn á áttunda áratugnum og kom fram í nærri 150 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Meðal þekktustu hlutverka hans voru meindýraeyðirinn í Jumanji frá 1995 og barþjónninn Jimmy í stórmyndinni Top Gun: Maverick frá 2022. Þá kom hann einnig fram í þáttum á borð við NYPD Blue, Alias, The West Wing, Castle og The X-Files svo einhverjir séu nefndir.