Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefnin frá klukkan fimm í gær til klukkan fimm í nótt. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir vesturhluta borgarinnar.
Annar leigubílstjóri komst í hann krappan í sama umdæmi þegar farþegi neitaði að greiða fargjaldið þegar komið var á áfangastað. Málið var leyst á vettvangi og greiddi farþeginn fyrir farið.
Í Garðabæ barst tilkynning um unga drengi sem voru að sprengja svokölluð víti í og við íbúðahverfi. Það fylgdi sögunni að þeir hefðu stundað þetta undanfarna daga. Þeir fundust þó ekki við leit lögreglu.
Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem sinnir Breiðholti og Kópavogi, barst tilkynning um líkamsárás þar sem þrír réðust á einn. Maðurinn sem tilkynnti árásina kvaðst vera vinur fórnarlambsins en gat ekki lýst mönnunum eða hvar vinur hans væri. Hann sagði lögreglu hvar atvikið átti að hafa átt sér stað en á vettvangi var enginn sjáanlegur.