Fyrsti af nýju God of War leikjunum um Kratos og Atreus/Loka son hans, hefst á því að Kratos safnar eldivið til að brenna lík Faye/Laufeyjar eiginkonu sinnar. Allur fyrsti leikurinn snýst um það að dreifa ösku hennar.
Seinna meir kemur í ljós að hún var mikill stríðsmaður jötunna og gekk undir nafninu „verndari Miðgarðs“ og að hún hélt miklu leyndu fyrir Kratos og Atreus.
Nýjasti leikurinn í seríunni fjallar um hana og virðist sem hann byrji eftir að Laufey hefur verið brennd og komin á nýtt tilvistarstig. Þá er hún á stað sem guðirnir fara þegar þeir deyja, í söguheimi God of War.
Eins og í fyrri leikjunum er það Deborah Ann Woll sem leikur Laufey.
Hér að neðan má sjá fyrstu mínútur leiksins sem sýndar voru á kynningu Sony í gær.
Hér eru svo tvö myndbönd þar sem sýnd eru viðtöl við starfsmenn Santa Monica Studios og leikara leiksins.