Verðlaunahátíð Sagna fór fram með pompi og prakt í beinni útsendingu á RÚV í Borgarleikhúsinu í kvöld þar sem barnamenning og sköpunarverk barna voru í aðalhlutverki en kynnar hátíðarinnar voru þau Hólmfríður Hafliðadóttir og Mímir Bjarki Pálmason.
Þá hlaut Stundin Okkar heiðursverðlaunin fyrir ómetanlegt framlag sitt til barnaefnis um árabil. Fyrsti þáttastjórnandinn, Hinrik Bjarnason, tók við verðlaununum en þátturinn fagnar 60 ára afmæli í ár.
Á hátíðinni í kvöld voru veitt verðlaun fyrir það barnamenningarefni sem stóð upp úr á síðasta ári samkvæmt niðurstöðum kosninga fyrir börnin á öllu landinu.
Verðlaunahafar ársins:
- Bók ársins - Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson
- Myndlýsing ársins - Skólastjórinn eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur
- Fjölskyldusjónvarpsþáttur ársins - Góðir Íslendingar
- Barna- og unglingaefni ársins - Krakkaskaupið 2025
- Sýning ársins - Lína Langsokkur
- Leikari/Leikflokkur ársins - Barnaleikhópurinn í Galdrakarlinum í Oz
- Talsetning ársins - Lilo og Stitch: Lilo - Inga Sóllilja Arnarsdóttir
- Lag ársins - „Einhver þarf að segja það“ - Jón Jónsson og Silvía Nótt
- Flytjandi ársins - Laufey
- Sjónvarpsstjarna ársins - Inga Sóllilja
Þá hlutu börnin sem áttu sigurverk í flokki smásagna, lags og texta, stuttmyndahandrita og leikritahandrita Svaninn, verðlaunagrip Sagna.
- Smásögur ársins - Emma, Ísbjörninn og fjólubláa skóflan eftir Valdísi Eir Óskarsdóttur og Nistið eftir Lovísu Hind Þorsteinsdóttur.
- Stuttmyndahandrit ársins - Svartholið eftir Móeiði Ronju Davíðsdóttur, Týnda mjólkin eftir Karítas Magnúsdóttur og Gleraugun eftir Þórunni Obbu Gunnarsdóttur og Guðfinnu Kristnýju Helgadóttur.
- Leikritahandrit ársins - Torgið eftir Ásgeir Atla Rúnarsson og Geimverur í heimsókn! eftir Axel Frey Garðarsson, Hilmar Birkisson, Hrein Atla Gunnarsson og Sævar Hrafn Garðarsson.
- Lag og texti ársins - „Skólavinur“ eftir Auði Helgu Aradóttur Einarsdóttur, flutt af Klöru Elías, „Náttfatapartý“ eftir Evu Máneyju Ingibergsdóttur og Söru Lovísu Gunnarsdóttur, flutt af Jóhönnu Guðrúnu, og „Förum út í geim“ eftir Ómar Elí Fannarsson, flutt af VÆB.




