Knattspyrnumaðurinn Victor Udoh er látinn aðeins 21 árs gamall.
Udoh lék síðast með Budějovice í Tékklandi en hann var leikmaður Southampton á Englandi á síðasta ári og féll með liðinu úr ensku úrvalsdeildinni.
ESPN greinir frá því að Udoh hafi líklegast látist af völdum matar- eða áfengiseitrunar en hann sást skemmta sér í heimalandinu Nígeríu daginn áður en hann fannst látinn.