Vegna brælu á miðunum hafa hvalbátarnir beðið átekta í Hvalfirði frá því á miðvikudag. Veður er að ganga niður og má búast við að þeim verði báðum siglt aftur út til veiða síðar í dag, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Farið er að síga á seinni hluta hvalvertíðarinnar. Veiðunum hefur í seinni tíð venjulega lokið í síðari hluta septembermánaðar þótt stundum hafi þær teygst inn í októbermánuð. Það ræðst þó mest af veðri og veðurhorfum en á þessum árstíma verða brælur tíðari auk þess sem birtutíminn styttist verulega.
Ólíklegt þykir að langreyðarkvóti ársins, upp á 116 dýr vestanlands, muni nást. Úr þessu fer jafnframt að vera hæpið að veiði sumarsins nái eitthundrað dýrum.
Þótt heildarkvótinn hafi verið upp á 150 dýr skilyrti ráðherra að 34 þeirra skyldu veidd austanlands. Sú veiði þykir ekki raunhæf vegna fjarlægðar og langs siglingatíma frá vinnslustöðinni í Hvalfirði.