Íslenska ríkið var sýknað í Landsrétti af kröfum níu mótmælenda sem kröfðust skaðabóta vegna aðgerða lögreglu í mótmælum við ráðherrafund árið 2024. Ríkið var sýknað af kröfum mótmælendanna í héraðsdómi Reykjavíkur í fyrravor.
Oddur Ástráðsson, lögmaður níumenninganna, segir niðurstöðuna vonbrigði. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfrýjun málsins.
Níumenningarnir mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund 31. maí í fyrra. Fundurinn var haldinn við Skuggasund í húsakynnum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Hópurinn hafði komið saman til þess að mótmæla aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda vegna stríðsglæpa ísraelska hersins á Gaza.
Lögregla hafi gætt meðalhófs
Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms þar sem kemur fram að lögregla hafi gætt meðalhófs í aðgerðum sínum. Í aðgerðunum beitti lögregla piparúða að mótmælendunum.
Í dómi héraðsdóms var sagt að mótmælendur hefðu hagað sér ófriðsamlega en í dómi Landsréttar var orðalaginu hins vegar breytt. Oddur segir það vera lítinn sigur í málinu að orðalaginu í dómnum hafi verið breytt.
Oddur segir að fyrst og fremst hafi verið tekin ákvörðun um að fara í mál við ríkið til þess að veita valdinu aðhald, lögregla hafi misbeitt valdi í mótmælunum.
Oddur segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um áfrýjun dómsins.