Landsréttur felldi á fimmtudag úr gildi rúmlega mánaðargamlan úrskurð Héraðsdóms Suðurnesja þess efnis að manndrápsmáli gegn lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni skyldi vísað frá dómi. Málið verður því að óbreyttu tekið til aðalmeðferðar.
Héraðssaksóknari ákærði Skúla fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa sett eldri konu í lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að nauðsynjalausu. Fleiri slík tilvik voru til rannsóknar en að lokum var aðeins ákært fyrir eitt.
Héraðsdómur Reykjaness vísaði málinu frá 21. júlí með þeim rökum að Skúla hefði þegar verið gerð refsing þegar embætti landlæknis svipti hann starfsleyfi vegna málsins í janúar 2021.
Landsréttur er ósammála héraðsdómi um þetta, og kemst að þeirri niðurstöðu að stjórnsýsluákvörðun um réttindasviptingu geti ekki talist refsing eða refsikennd viðurlög í sakamáli.
„Markmið laganna [um landlækni og lýðheilsu] er því ekki að refsa þeim sem ákvörðun um sviptingu starfsleyfis beinist að, heldur eru í fyrirrúmi þeir almannahagsmunir að heilbrigðisstarfsmaður hafi ekki leyfi til starfs sem sýnt þykir að hann sé ófær um að gegna. Þá er ekkert refsiákvæði að finna í lögunum,“ segir meðal annars í niðurstöðu Landsréttar.
Hægt er að óska eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra frávísunarúrskurði þangað, ef Landsréttur úrskurðar ekki á sama veg og héraðsdómur. Fréttastofa hefur ekki náð tali af verjanda Skúla Tómasar til að spyrja hvort það verður gert.
Uppfært kl. 14:45.