Þróun landriss og kvikusöfnunar mælist áfram stöðug og jarðskjálftavirkni í Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil, segir í nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni.
Nýjustu líkanreikningar benda til þess að rúmir 27 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast undir Svartsengi frá síðasta gosi á svæðinu, um miðjan júlí 2025.
Í síðustu tilkynningu Veðurstofu, uppfærðri 26. maí 2026, kom fram að safnast hefðu rúmar 26 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi.
Í tilkynningu Veðurstofunnar frá 28. apríl síðastliðnum segir: „Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.“