Ef þú ert að leita að spennandi áfangastað sem sameinar stórbrotið landslag, heillandi strandbæi, ríkulega sögu og hagstætt verðlag gæti Svartfjallaland hæglega verið besti kosturinn fyrir næstu ferð. Þetta litla land við Balkanskagann hefur á síðustu árum orðið eitt mest spennandi land fyrir ferðamenn að heimsækja í Evrópu.
Svartfjallaland stendur við kristaltært Adríahafið og býður upp á ótrúlega fjölbreytta upplifun á litlu svæði. Á einum degi geturðu drukkið morgunkaffið við sjóinn í Kotor, gengið um miðaldagötur sem minna á Dubrovnik í Króatíu og verið komin upp til fjalla síðdegis með stórkostlegu útsýni.
Kotor er líklega þekktasti staður landsins. Gamli bærinn er á heimsminjaskrá UNESCO og þröngar steingötur, litlar kirkjur og notaleg kaffihús skapa einstaka stemningu. Fyrir þá sem vilja ævintýri er gönguleiðin upp að virkinu San Giovanni ómissandi og útsýnið yfir Kotorflóa talið eitt það fallegasta í Evrópu.
Fyrir þá sem vilja slaka á við sjóinn er Budva vinsælasti strandbær landsins. Þar má finna langar strendur, tærblátt haf og líflegt næturlíf. Gamli bærinn í Budva er einnig fallegur og með mikið af veitingastöðum þar sem hægt er að smakka ferska sjávarrétti og vín frá nálægum slóðum.
Þrátt fyrir að strandlengjan fái mikla athygli er náttúra Svartfjallalands kannski stærsta aðdráttaraflið. Durmitor-þjóðgarðurinn býður upp á djúpa dali, jökulvötn og gönguleiðir, bæði fyrir byrjendur og aðra vana göngugarpa.
Eitt af því sem gerir Svartfjallaland sérstaklega aðlaðandi er verðlagið. Þar er gjarnan ódýrara að borða á veitingastöðum og gista en í mörgum vinsælum Miðjarðarhafslöndum.
Hvenær er best að fara?
Sumarmánuðirnir júní til september eru vinsælastir á meðal þeirra sem vilja strandarlíf og sól. Vorin og haustin henta vel þeim sem vilja forðast mesta mannfjöldann og njóta milds veðurs. Á þeim tíma er einnig sérstaklega fallegt að ferðast um fjallasvæðin.
