Landamæri Spánar og Gíbraltar voru opnuð við hátíðlega athöfn í morgun. Þetta þýðir að ekki þarf lengur vegabréfaeftirlit þegar farið er um landamærin. Samningar voru undirritaðir í gær milli Bretlands, Spánar og Evrópusambandsins um að Gíbraltar yrði í raun partur af Schengen-samstarfinu um frjálsa för fólks.
Forsætisráðherrar bæði Gíbraltar og Spánar stóðu fyrir táknrænni athöfn þar sem girðingar voru rifnar niður. Eftirlitsbásar voru einnig fjarlægðir. Um 16 þúsund Spánverjar sækja vinnu á Gíbraltar og þessi ráðstöfun auðveldar þeim mjög að komast til vinnu.