Áki Frostason, einnig þekktur sem raftónlistarmaðurinn Pitenz á Akureyri, lagði legstein á gömlu BSO-lóðina við Strandgötu á Akureyri á föstudaginn. Töluvert hefur verið fjallað um Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri sem var gert að víkja af lóð í Strandgötu þar sem hún stóð í 70 ár.
Hreyfill tók við rekstrinum 1. júní. Löng og mikil saga er á bak við flutninga BSO sem meðal annars stefndi Akureyrarbæ.
Legsteinninn er á miðri lóðinni á gatnamótum Drottningarbrautar og Strandgötu. Blóm hafa verið lögð við legsteininn og Áki hvetur vegfarendur til að leggja blóm á leiðið ef þeir vilja minnast BSO.
Hús BSO var flutt í Jólagarðinn 14. júní. Ekki er búið að ákveða hvernig það verður nýtt en þar er Jólahúsið sem laðar marga ferðamenn að á hverju ári.