Unnar Steinn Sigurðsson flutti til New York og gekk þar í sama leiklistarskóla og Hollywood-stjörnurnar Adam Sandler, Scarlett Johansson, Chris Evans og Alec Baldwin.
Skólinn heitir Lee Strasberg Theatre and Film Institute og sérhæfir sig í svokölluðum „method-leik.“ Unnar ræddi við Dagmál ásamt Jóhanni Inga Eggertssyni en þeir halda úti Sketsagerðinni á samfélagsmiðlum og birta þar grínsketsa.
Hann segir sögurnar sem fari af method-leikurum oft vera ýktar.
Stórlega ýktar sögur
„Það er smá svona „myth“ sko, að allir method-leikarar séu fastir í karakter í þrjá mánuði og læsi sig inni á hótelherbergi og eitthvað svona.“
Sumir leikarar sem þekktir eru fyrir þessa aðferð hafa einmitt borið af sér slíkar sögur. Fræg dæmi eru til dæmis Heith Legder í Batman-myndinni The Dark Knight og Jeremy Strong í þáttaröðinni Succeccion. Daniel Day-Lewis hefur einnig verið þekktur fyrir method-leik.
Báðir eru sagðir hafa lifað sig algjörlega inn í hlutverkin, líka eftir að slökkt hafði verið á myndavélinni. Ingvar E. Sigurðsson var meðleikari Strong í litlu hlutverki í Succession og sagðist aldrei hafa hitt Strong öðruvísi en í karakter. Ingvar sagði hann hafa verið með stæla. Það sæmir hans karakter í þáttunum vel.
Sumir ganga nærri sér
„En það sem þetta er í rauninni er að þú ert að nota rosa svona praktíska leið.“
„Ef þú þarft að leika eins og þér sé kalt, þá notarðu einhverja minningu af því þegar þér var kalt. Eða ef þú ert að leika það að vera með einhvern hræðilegan sársauka einhvers staðar, þá ferðu til baka í eitthvert tímabil þar sem þú varst með hræðilegan sársauka, hvort sem hann er andlegur eða líkamlegur,“ segir Unnar.
Hann segir að nemendur hafi þurft að gæta sín á því að ganga ekki of nærri sér. Sumir hafi ekki passað sig á því.
„Þetta var stundum alveg svolítið brútalt sko,“ segir Unnar.

