Lægð suður í hafi og hæð norðan lands beina til landsins norðaustan- og austanátt í dag þar sem víða verður 5 til 13 m/s og rigning með köflum. Allhvasst við norðurströndina.
Austanlands eimir enn eftir af kulda síðustu daga og þar eru líkur á slyddu með snjókomu til fjalla, en eftir hádegi í dag fer að hlýna í veðri.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á morgun verður austlæg eða breytileg átt, víða gola eða kaldi.
Á Suðaustur- og Austurlandi verður súld eða dálítil rigning þar sem hitastig verður 4 til 9 stig, en stöku skúrir um landið vestanvert með hita að 15 stigum.