Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sýknaði í gær karlmann af ákæru um líkamsárás og barnaverndarbrot þrátt fyrir að hann hefði viðurkennt að hafa kýlt unglingsstrák tvisvar í höfuðið. Pilturinn fékk heilahristing og hlaut yfirborðsáverka.
Atvikið átti sér stað um kvöldmatarleytið á þjóðhátíðardaginn 2022. Drengurinn sparkaði upp hurð að íbúð í blokk og hljóp í átt að lyftu þar sem þrír félagar hans biðu.
Hljóp með hníf á eftir drengnum
Maðurinn sagðist hafa verið að skera melónu þegar útidyrahurðin opnaðist skyndilega og séð einhvern hlaupa í burtu. Hann hefði hlaupið eftir honum, lagt hnífinn frá sér og kýlt hinn tvisvar í höfuðið. Hann hefði síðan áttað sig á að þetta væri barn og þá hefði maðurinn róast.
Lögreglumenn sem mættu á vettvang sögðu að sjá hefði mátt á hurðarkarmi að læsing útidyrahurðarinnar hefði brotnað við höggið og trébútur brotnað af hurðarkamrinum.
Vissi ekki að hann væri að kýla barn
Maðurinn var ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarbrot. Tekist var á um það fyrir dómi hvort maðurinn hefði framið barnaverndarbrot þegar hann kýldi drenginn. Hann sagðist ekki hafa vitað aldur drengsins fyrr en hann var búinn að kýla hann. Drengirnir voru með hettuhúfu og sumir hávaxnari en aðrir. Auk þess bar hann við neyðarvörn eftir að hurðin að heimili hans var spörkuð upp.
Dómari sagði ósannað að maðurinn hefði vitað aldur drengsins. Því var hann sýknaður af barnaverndarbroti. Þá stóð eftir ákæran fyrir líkamsárás en sú sök var fyrnd. Atvikið gerðist í júní 2022 og var rannsakað skömmu eftir það. Síðan gerðist ekkert frá því skýrsla var tekin af drengnum í barnaverndarhúsi skömmu fyrir jól sama ár þar til næstu skýrslur voru teknar af vitnum.
Tveggja ára fyrningartími var því liðinn og maðurinn alfarið sýknaður.