Kýld niður fjallið og svo horft á for­manninn ljúga í fjöl­miðlum - Vísir

Kýld niður fjallið og svo horft á for­manninn ljúga í fjöl­miðlum - Vísir

Kýld niður fjallið og svo horft á for­manninn ljúga í fjöl­miðlum - Vísir

Þóra Björk Ingólfsdóttir hefur starfað á Vík í áratug, fyrst sem sálfræðingur áður en hún tók við stöðu fagstjóra. Hún hætti þar nýverið störfum eftir að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ, en í kjölfarið tilkynnti Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, að hún ætlaði einnig að láta af störfum. 

Þóra segir ástæðuna fyrir brotthvarfi sínu vera óeðlileg afskipti stjórnar SÁÁ af faglegu meðferðarstarfi og að starfslokasamningur hafi verið gerður við yfirmann sinn „í óþökk allra“.

Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.Vísir/Sigurjón

Valgerður segir sömuleiðis í samtali við RÚV að það sé óviðunandi að stjórn SÁÁ hafi afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna. Hún treysti sér ekki til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum utanaðkomandi forstjóra.

Því logið að allt sé í góðu lagi

Þóra segir að Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hafi farið með rangt mál í samtali við Vísi á þriðjudag þegar hún sagðist ekki hafa fengið fregnir af því að Valgerður ætlaði að hætta störfum.

Hún bætir við að Valgerður hafi verið lykilmanneskja í meðferðarstarfinu með áratugalanga reynslu.

„Í rauninni veit starfsfólkið ekkert hvað nákvæmlega kom upp á eða hvað gerðist. Svo er því bara logið að hlutirnir séu í góðu og við höfum ákveðið að hætta og ég væri komin með aðra vinnu og það er bara sópað yfir þetta eins og hægt er,“ segir Þóra í samtali við Vísi.

„Svo er hringt í formanninn og hún þóttist ekki vita að Valgerður hefði hætt. Ég er alveg með það staðfest að hún vissi það alveg vikuna á undan um leið og þessi uppsögn kom inn og þá vissi hún alveg af henni. Það verður auðvitað reiði í starfsmannahópnum þegar það er verið að ljúga að fólki.“

Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður stjórnar SÁÁ.Vísir/Hulda Margrét

Anna Hildur, formaður SÁÁ, sagði í samtali við Vísi á þriðjudag að hún hefði ekki fengið fregnir af því að Valgerður hefði sagt upp störfum fyrr um morguninn. Hún lagði áherslu á að sem formaður stjórnar kæmi hún ekki nærri starfsmannamálum samtakanna.

Hafi engu að tapa

Þóra er afdráttarlaus þegar hún ræðir stöðuna innan SÁÁ og segir þörf á breytingum: „Ég hef engu að tapa og það er í rauninni bara meiri ávinningur af því að koma hreint fram heldur en að vera alltaf að sópa yfir eitthvað sem þarf að breyta.“

Það hafi verið erfitt fyrir hana að horfa á eftir Ragnheiði, forstjóra SÁÁ, í síðasta mánuði. Nýr heildarsamningur var gerður milli SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands í fyrra um meðferð við fíknisjúkdómi.

„Hún var ekki á leiðinni út þegar ég talaði við hana daginn áður. Þannig að maður las alveg milli línanna strax og maður vissi líka alveg að stjórnin væri búin að vera að skipta sér af.“

„Hún er náttúrulega minn yfirmaður og ég sá ekki alveg fram á hvernig ég gæti verið að innleiða þessa samninga við Sjúkratryggingar Íslands og allt sem var búið að plana fyrir veturinn.“

„Þetta var hræðilegur tími til að gera starfslokasamning við forstjóra af því við erum náttúrulega nýbúin að fá tímamótasamninga sem forstjórinn leiddi áfram og ýmsar innleiðingar sem þurfa að fara í gang út frá þessum samningi,“ bætir Þóra við.

Við undirritun var nýi samningurinn sagður marka „mikilvægt skref í átt að auknum sveigjanleika, markvissari forgangsröðun, auknum afköstum og skýrari gæðakröfum í fíknimeðferðum á Íslandi,“ eins og það var orðað í yfirlýsingu Sjúkratrygginga.

„Ég sá ekki alveg fram á hvernig við ætluðum að ná þessu og hvað þá þegar stjórnin er með allt aðrar áherslur og yfirmaðurinn minn er farinn sem í rauninni leiddi þessa vinnu alla og var inni í þessu öllu,“ segir Þóra.

Stjórnin með óraunhæfar hugmyndir

Staðan er mjög slæm, að mati Þóru: „Manni þykir náttúrulega vænt um vinnufélaga sína og vinnustaðinn af því við vorum komin á svo rosalega góðan stað og vorum búin að gera svo rosalega flotta faglega vinnu.“

Svo hafi farið að bera á íhaldssemi og vilja til að færa sig aftur í kerfi sem SÁÁ hafi verið að færa sig frá í mörg ár, að sögn Þóru. Hún sé ekki viss um að stjórn SÁÁ viti sjálf hvert hún sé að stefna.

„Það voru bara mjög óraunhæfar hugmyndir um hvernig meðferð og daglegt starf virkar, enda eru þau ekki að vinna á gólfinu eins og við.“

Stjórn félagasamtakanna SÁÁ hafi ekki verið valin út frá þekkingu á eða reynslu af meðferðarstarfi.

Deilur áður komið upp hjá SÁÁ

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem deilur koma upp milli stjórnenda og stjórnar SÁÁ en Valgerður Rúnarsdóttir hætti skyndilega sem forstjóri Sjúkrahússins Vogs og framkvæmdastjóri lækninga árið 2020 og vísaði í djúpstæðan ágreining við formann SÁÁ. Hún dró síðar uppsögn sína til baka.

„Sagan endurtekur sig alltaf með nýju fólki. Félagasamtök eiga ekki að stýra heilbrigðisþjónustu að mínu mati. Við lentum í því nákvæmlega sama fyrir fimm árum síðan. Þetta gerist með nýju fólki og það bara þarf eitthvað að breytast,“ segir Þóra.

„Stjórnin sem hefur verið er yfirleitt fólk sem hefur ekki faglega heilbrigðisþekkingu, hefur í rauninni lítið vit á meðferð, sem er allt í lagi svo lengi sem þau vinna sína vinnu. En það hafa alltaf verið mjög óljós í rauninni skil á milli hversu mikil afskipti stjórnin á að hafa af faglegri meðferð.“

Kýld niður fjallið

„Þau eru að fara inn í mál sem þau eiga ekki að vera að skipta sér af. Þau eru að ráða fólk í teymisstjórastöður, þau eru að setja fólk í önnur aukaverkefni, þau eru að skipta sér allt of mikið af einstaka þáttum í meðferðinni,“ segir Þóra um afskipti stjórnar SÁÁ af meðferðarstarfinu.

Hún bendir á að þjónustan lúti eftirliti Sjúkratrygginga og þurfi að standast þær kröfur sem gerðar hafi verið í áðurnefndum samningi.

„Áherslan er ekkert á því. Áherslan er á einhverju allt öðru, að fara að búa til einhverja nýja þjónustu og eitthvað svona. Þetta er bara óraunhæft eins og staðan er og í rauninni ólíðandi að þau skuli skipta sér svona mikið af okkar störfum, treysta okkur ekki bara til þess að vinna okkar góðu vinnu.“

SÁÁ rekur meðal annars Sjúkrahúsið Vog. Vísir/vilhelm

Þóra segist vera svekkt og að mikið púður hafi farið í að byggja upp þjónustuna. Starfsmannaánægja hafi aldrei verið meiri og það haldist í hendur við að þjónustan hafi verið að þróast í rétta átt.

„Það var allt á svo mikilli uppleið. Svo einhvern veginn er maður kýldur enn einu sinni niður fjallið. Ég fékk bara nóg í rauninni út af þessum ástæðum og út frá því að ég gat heldur ekki séð hvernig ég ætti að halda áfram mínum störfum án þess að hafa minn yfirmann sem var búinn að vera stoð og stytta í þessu öllu og þekkti þetta inn og út.“

Leggur til að Sjúkratryggingar skipi starfsstjórn

„Þetta var komið gott og mér finnst bara algjörlega fullreynt að félagasamtök séu að skipta sér af heilbrigðisþjónustu. Eitthvað þarf að breytast að mínu mati.“

Það sé tímabært að íslensk stjórnvöld endurhugsi það fyrirkomulag sem hefur við lýði í tengslum við meðferðarstarf SÁÁ. Ein leið gæti verið að Sjúkratryggingar myndu skipa einhvers konar starfsstjórn á sínum vegum.

„Það er ýmislegt sem er hægt að gera, því að öllu öðru leyti gengur meðferðarstarfið vel og það er flott fagleg vinna unnin þarna með flottu fólki. Það er allt á glimrandi uppleið, nema náttúrulega núna þegar allir eru að labba út. Það hefur verið svo flott vinna unnin þarna, allt eftir gagnreyndum og nútímalegum aðferðum og við vorum að vinna í svo mikilli þróunarvinnu og vorum að byggja upp svo flott starf. 

Þetta verður svo svekkjandi þegar maður er einhvern veginn alltaf kominn aftur á byrjunarreit. Maður tekur einhvern veginn tvö skref áfram og þá einhvern veginn fer maður tíu til baka. Það er svona upplifunin.“

Mikið gengið á

Þóra segir að stjórnendurnir þrír hafi enn ekki fengið nein viðbrögð frá stjórninni eftir að þær sögðu þrjár upp störfum. Erfitt sé að horfa upp á þróunina og hún hugsi mikið til starfsfólksins sem situr eftir.

„Það er ótrúlega erfitt að einhvern veginn þurfa að labba í burtu frá þessu og Vík þar sem ég var fagstjóri. Manni þykir vænt um auðvitað málstaðinn og fólkið sem leitar þjónustu til okkar og manni er ekki sama um samstarfsfólkið sitt.“

Starfsfólkið sé viðkvæmt fyrir átökum sem þessum þar sem mikið hafi gengið á síðustu ár og hún finni til með þeim.

„Þetta er auðvitað ömurlegt og mjög sorglegt. Maður missti aldrei áhuga á vinnunni sinni eða málstaðnum, maður missti bara áhuga á þessari pólitík og þessum öflum sem eru búin að vera á bak við tjöldin,“ segir Þóra.

Sjúkrahús ekki rekið án lækna

Þóra segist hafa miklar áhyggjur af því hvaða áhrif breytingar stjórnarinnar kunni að hafa á þjónustuna og skjólstæðinga SÁÁ. Nú vanti yfirlækni og fáir læknar séu almennt eftir starfandi.

Þá segist Þóra vita til þess að fleiri starfsmenn séu að líta í kringum sig og hyggist hætta ef þeim bjóðast atvinnutækifæri annars staðar.

„Hvernig ætlar þú að reka sjúkrahús þegar það verður enginn læknir starfandi?“

Þá telji hún að það verði erfiðara að innleiða þær kröfur sem Sjúkratryggingar hafi gert til þjónustunnar ef inn koma nýir yfirmenn og fólk með litla þekkingu á meðferðarlegu umhverfi.

„Maður verður bara pínu svartsýnn að horfa fram á við.“

Muni að óbreyttu bara endurtaka sig

Þóra segir engan vafa á því að róttækar breytingar þurfi að eiga sér stað hjá SÁÁ.

„Jafnvel þótt það kæmi ný stjórn núna og nýr formaður, þá mun þetta bara endurtaka sig. Þetta er bara fullreynt.“

Hún vill að ríkisstjórnin eða Sjúkratryggingar skoði hvort þau geti haft aukna aðkomu að rekstrinum.

„Það þarf að vera faglegri aðkoma og skýrari skil milli þess sem stjórnin gerir og við gerum í meðferðinni. Ég hef bara miklar áhyggjur af stöðunni og hvernig þetta muni verða og er bara ótrúlega reið og sár og leið. Manni líður bara mjög skringilega með þetta.“

#fjallið #horft #kýld #niður #svo


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930736d/kyld-nidur-fjallid-og-svo-horft-a-formanninn-ljuga-i-fjolmidlum

📰 Aðrar fréttir

Leiðtogi sértrúarsöfnuðar dæmdur sekur fyrir morð á 190 börnum
📅 20.10.2026 👁️ 0
Leiðtogi sértrúarsöfnuðar dæmdur sekur fyrir morð á 190 börnum
Paul Mackenzie stýrði dómsdagstrúarsöfnuðinum Alþjóðleg kirkja góðra frétta (e. Good News International Church). Söfnuðurinn var til húsa á búgarði Ma...
Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás
📅 20.10.2026 👁️ 2
Þingkona sögð hafa misst annan fótlegginn eftir árás
Helen Haines, 65 ára gömul áströlsk þingkona, liggur þungt haldin á sjúkrahúsi þar sem hún þurfti að undirgangast aðgerð eftir að ekið var á hana í gæ...
Chancellor rejects calls to raise Capital Gains Tax in Budget
📅 20.10.2026 👁️ 2
Chancellor rejects calls to raise Capital Gains Tax in Budget
Influential Labour figures had been pushing for equalising CGT and income tax, but critics have said this could drive wealthy people out of Britain.
14 látnir eftir skriðufall á ólöglega gullnámu
📅 20.10.2026 👁️ 2
14 látnir eftir skriðufall á ólöglega gullnámu
14 námuverkamenn eru látnir og sjö særðir í Kólumbíu eftir að skriða féll yfir ólöglega gullnámu.Skriðan féll í héraðinu Nariño sem á landamæri að Ekv...
Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf
📅 20.10.2026 👁️ 3
Christiane Amanpour hættir á CNN eftir 43 ára starf
Christiane Amanpour, aðalfréttaþulur CNN á alþjóðavettvangi, tilkynnti í dag að hún muni hætta hjá fréttastöðinni í júní á næsta ári. Amanpour hefur s...
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ - Vísir
„Það veit bara enginn hvað er í gangi,“ segir Arnþrúður Kristín Zoëga Ingvadóttir, íslenskur arkítektúrnemi í IED, í samtali við Vísi. Hún segir að ne...
„Eignuðust hreinlega nýtt líf“
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Eignuðust hreinlega nýtt líf“
Tvenn ungmenni, þolandi og gerandi, hafa að sögn Kristínar Skjaldardóttur, félagsráðgjafa og sérfræðings í uppbyggilegri réttvísi, fengið nýtt tækifær...
Criminals in hospital set to lose benefits under new rules
📅 19.10.2026 👁️ 3
Criminals in hospital set to lose benefits under new rules
The families of the victims of Nottingham killer Valdo Calocane had been campaigning for the change.
Five ways El Niño is affecting the weather around the world
📅 19.10.2026 👁️ 3
Five ways El Niño is affecting the weather around the world
As the strongest El Niño on record continues to intensify, what impacts on weather patterns are already being felt across the globe? Sarah Keith-Lucas...
Sonur gekk inn á vörubílstjóra að hafa samfarir við lík móður hans - „Fyrirgefðu, ég á skilið að vera kýldur kaldur“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sonur gekk inn á vörubílstjóra að hafa samfarir við lík móður hans - „Fyrirgefðu, ég á skilið að vera kýldur kaldur“
Breskur vörubílstjóri á sjötugsaldri hefur verið dæmdur til fangelsisvistar eftir að hafa misnotað lík nýlátinnar konu. Sonur hennar kom að bílstjóran...
„Gott dæmi um að það er ekki verið að lækna rétt mein“
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Gott dæmi um að það er ekki verið að lækna rétt mein“
Í síðustu viku var greint frá því að Litli spítalinn ehf. hefði tekið á leigu neðstu hæðir Háaleitisbrautar 68, sem voru áður að hluta höfuðstöðvar La...
Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu - Vísir
Þetta fullyrðir bandaríski slúðurmiðillinn PageSix. Miðillinn segir að þau hafi kynnst við tökur á Netflix myndinni Office Romance sem frumsýnd var sí...
Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
📅 19.10.2026 👁️ 5
Ósammála feðgar virða skoðanir hvors annars
Íbúar í Alberta-fylki greiða atkvæði í um hvort það eigi að vera áfram hluti af Kanada. Þótt búist sé við að meirihluti vilji vera það áfram hefur umr...
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu - Vísir
Í skýrslunni, sem fjallar um eftirfylgni við 79 þingmál frá árunum 2022–2025, er farið yfir hernaðarlegan og borgaralegan stuðning við Úkraínu, mannúð...
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu - Vísir
Fram kemur í umfjöllun bandaríska miðla að átta hafi verið um borð í vélinni, Wahlberg og fylgdarlið hans. Vélin hafi átt að fara í loftið 12:50 að st...
Clean up begins after French riots but police remain
📅 19.10.2026 👁️ 5
Clean up begins after French riots but police remain
Outside of Paris, Marseille saw some of the worst damage, with shop owners reporting more than 600 premises having been looted.
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
📅 19.10.2026 👁️ 5
Burnham vows end to 'rip-off parking charges' under new rules
Penalties are seen as too harsh on motorists who are penalised for parking on private land.
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 5
Christiane Amanpour mun kveðja CNN - Vísir
Hin 68 ára gamla Amanpour er margverðlaunaður blaðamaður sem flutt hefur fréttir af helstu átakasvæðum víða um heim og hefur hún starfað sem aðalfrétt...
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
📅 19.10.2026 👁️ 5
US Church on frontline of battle against drug known as 'tranq'
Synthetic opioids like fentanyl are more powerful and in plentiful supply, and they have transformed the drugs landscape.
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánar...
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
Hugmyndin kom fram í sérstakri umræðu um sjálfkeyrandi bíla á Alþingi í dag. Þar var rætt um hvernig undirbúa ætti íslenska vegakerfið og löggjöf fyri...
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar...
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar Fréttin19. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a...
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
📅 19.10.2026 👁️ 4
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
Stjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þin...
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
Nylon starfaði einnig um tíma í Bretlandi, en sveitin hætti svo að koma fram undir merkjum Nylon árið 2008. Liðsmenn komu þó aftur saman á Menningarnó...
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra ...
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 4
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdó...
Sahara Ray látin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sahara Ray látin - Vísir
TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Ray varð fr...
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til ...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 4
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Richard Riehle látinn - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Richard Riehle látinn - Vísir
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamle...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 4
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 5
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 4
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 4
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 5
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 5
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 4
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...