Umboðsmaður Alþingis sér ekki ástæðu til að gera athugasemdir við þá niðurstöðu Fjölmiðlanefndar að ekkert hafi verið athugavert við fréttir Vísis og Mbl.is um trans karlmann sem gekk með barn. Taldi aðilinn sem lagði kvörtunina fram að báðir fjölmiðlar hefðu með fréttunum gerst brotlegir við fjölmiðlalög. Var í kvörtuninni meðal annars vísað til ákvæða í lögunum um að fjölmiðlar skuli kappkosta að birta ekki efni sem geti verið skaðlegt börnum.
Kvörtunum yfir fréttum Vísis og Mbl um óléttan trans mann hafnað - Vísuðu til ákvæða í fjölmiðlalögum um efni sem er skaðlegt börnum